Ísland - Frímerki
ÍSLAND - SAFN TIL 2020 ÁSAMT MIKILS MAGNS AF AUKAMERKJUM. Safn í Davo möppu sem nær frá auramerkjum til ársins 2020, talvert af betri merkjum í safninu m.a. allar þrjár Alþingishátíðarseríurnar frá árinu 1930, nokkuð blandað óstimplað og stimplað en nýrri árin óstimpluð (mjög hátt nafnverð), Möppur með ýmsum sérstimpla- og fyrstadagsumslögum, m.a. Zeppelin- og Ballonpóstsumslög. Fjöldi óstimplaðra nýrri merkja (eftir árið 2000), smáarka og frímerkjahefta í innstungubókum og möppu, talsvert magn aukamerkja í innstungubókum (þ.á.m. talsvert af nýrri merkjum), laust í litlum kassa ásamt talsverðs magns í pergament umslögum í 4 pappaöskjum. Í lokin svo talsvert af kílóvöru (sést á mynd nr. 2 en þó ekki með í myndbandi). SJÁ MYNDBAND. Ath. að reykingalykt er af öllum munum úr þessu tiltekna safni og er lágmarksupphæðum boða þess vegna stillt mjög í hóf. Lyktin getur verið allt frá því að finnast vart upp í að vera mikil og fæst mununum ekki skilað á grundvelli lyktar. Frekari upplýsingar veitir Gísli Geir í síma 840-4944. Komi til þess að þurfi að senda efnið til kaupanda mun kostnaður við slíkt verða reiknaður eftir uppboðið, flutningskostnaður reiknast skvt. verðskrá Íslandspósts.
Sendingarkostnaður (0 gram)
Sótt eða sent með eldri pöntun: ISK 0,00
Lot: 62171 (Box345)