SELJA Í GEGNUM SAFNARI.IS
- Raða eftir: :
Um að selja í gegnum Safnari.is
Við hjá Íslensk Frímerki ehf. tökum að okkur sölumiðlun á ýmsum söfnunarmunum í gegnum uppboð á heimasíðu okkar Safnari.is gegn þóknun. Þjónustan er í boði fyrir aðila s.s. einstaklinga, fyrirtæki og dánarbú.
Uppboð á eftirfarandi söfnunarvörum eru að jafnaði einu sinni í mánuði: frímerkjaefni, póstkortum, mynt og seðlatengdu efni. Uppboð á öðrum söfnunarmunum en þeim sem nefndir eru hér að ofan eru að jafnaði annan hvern mánuð. Efni berist miðlara helst ekki síðar en 3 vikum fyrir fyrirhuguð uppboðslok nema með sérstöku samkomulagi.
Endilega hafðu samband við okkur og fáðu frekari upplýsingar ef þú telur þig luma á einhverju sem hentugt gæti verið að selja í gegnum uppboð hjá okkur.
Íslensk Frímerki ehf.
Tölvupóstur: info@safnari.is
Sími: 840-4944 og 823-0236