1933 - Ísland - 165 - Frímerki - Óstimplað (hengt)
Fallega miðjað, mjög létt hengt eintak af 1 kr Hópflugsmerki.
Lot: 6575
ISK 16.000,00
Fjöldi boða: 7
Selt
1933 - Ísland - 165 - Frímerki - Stimplað
Fallega stimplað 1 kr Hópflugsmerki frá árinu 1933. Ljósrit af vottorði frá hinum afar vel þekkta ítalska sérfræðingi Bolaffi frá því þegar merkið sat ennþá á snifsi. Mjög hreint og fallegt merki. Facit ca 85.000 ISK.
Lot: 6671
ISK 52.000,00
Fjöldi boða: 15
Selt
1933 - Ísland - 166 - Frímerki - Stimplað
Vel miðjað 5 kr Hópflugsmerki frá árinu 1933 með óvenju vel staðsettum stimpli en slíkt er ansi sjaldséð á einmit á þessari útgáfu. Merkinu fylgir ljósrit af vottorði frá hinum afar vel þekkta ítalska sérfræðingi Bolaffi frá því þegar merkið sat ennþá á snifsi. Facit ca 182.000 ISK.
Lot: 6672
ISK 53.000,00
Fjöldi boða: 3
Selt
1933 - Ísland - 167 - Frímerki - Stimplað
Afar fallega stimplað 10 kr Hópflugsmerki frá árinu 1933. Vottorð frá hinum afar vel þekkta ítalska sérfræðingi Bolaffi frá því þegar merkið sat ennþá á snifsi fylgir. Facit ca 350.000 ISK. Fallegast stimplaða 10 kr Hópflugsmerki sem okkur rekur í minni að hafa séð, hvort sem heldur er á mynd eða með berum augum.
Lot: 6673
ISK 317.000,00
Fjöldi boða: 35
Selt
1925 - Ísland - 168-172 - Frímerki - Óstimplað (óhengt)
Afbragðsfallegt heilt ÓHENGT sett af útgáfunni „Myndir og Byggingar“ frá árinu 1925, merkin vel miðjuð og í óvenjugóðri tökkun. Facit ca 91.000 ISK.
Lot: 6576
ISK 22.000,00
Fjöldi boða: -
Selt
1925 - Ísland - 171 - Frímerki - Stimplað
Afar fallega stimplað 35 aura merki með Reykjavíkurmynd frá árinu 1925, stimplað á Akureyri.
Lot: 6675
ISK 17.000,00
Fjöldi boða: 28
Selt
1930 - Ísland - 173-188 - Frímerki - Óstimplað (óhengt)
Fallega varðveitt, heil ÓHENGD 16 verðgilda sería af Alþingishátíðarútgáfunni frá árinu 1930. Facit ca 98.000 ISK.
Lot: 6579
ISK 27.000,00
Fjöldi boða: 1
Selt
1930 - Ísland - 173P - Frímerki - Óstimplað án líms
Prufuprent af meginprenti 3 aura Alþingishátíðarmerkis í ljósbláum lit með stórum jaðri úr horni.
Lot: 6580
ISK 8.100,00
Fjöldi boða: 5
Selt
1930 - Ísland - 175 - Frímerki - Óstimplað (hengt)
7 aura Alþingishátíðarmerki með arkarjaðri úr efra hægra horni þar sem ÓTAKKAÐ er á milli merkisins og arkarjaðarsins fyrir ofan. Ekki hengt en lítill blettur er á bakhliðinni (hefur líklega setið fast við næstu örk í bunkanum).
Lot: 6582
ISK 5.500,00
Fjöldi boða: 1
Selt
1930 - Ísland - 175P - Frímerki - Óstimplað án líms
Prufuprent af meginprenti 7 aura Alþingishátíðarmerkis í fjólubláum lit.
Lot: 6583
ISK 9.000,00
Fjöldi boða: 4
Selt
1930 - Ísland - 177 - Frímerki - Óstimplað (óhengt)
Skemmtileg hliðrun lóðréttrar tökkunar efra pars 15 aura Alþingishátíðar-merkisins í fjórblokk (lóðrétt tökkun hverrar og einnar láréttrar raðar í örkinni var tökkuð fyrir sig). Smellið á myndina til þess að fá upp stækkaða mynd af tökkunargallanum. Blokkin er óhengd.
Lot: 6584
ISK 4.500,00
Fjöldi boða: 1
Selt
1930 - Ísland - 179 - Frímerki - Óstimplað án líms
Sjaldséð fjórblokk af ótökkuðu 25 aura Alþingishátíðarmerki. Fjórblokkin er hengd á lítið kartonspjald úr Hesshaimer kynningarbók um útgáfuna.
Lot: 6585
ISK 12.000,00
Fjöldi boða: 1
Selt
1930 - Ísland - 180E - Frímerki - Óstimplað án líms
Prufuprent af 30 aura Alþingishátíðarmerki, stærð sjálfs merkisins er ca 38x30 mm.
Lot: 6586
ISK 7.500,00
Fjöldi boða: 4
Selt
1930 - Ísland - 181 - Frímerki - Óstimplað (óhengt)
Mjög áhugavert óhengt 35 aura Alþingishátíðarmerki með arkarjaðri að ofanverðu. Parið er mjög sérstakt fyrir þær sakir að ca 5 millimetra frá láréttu tökkuninni a milli merkisins og jaðarsins að ofan er AUKA tökkunarröð í gegnum mynd merkisins. Ekki nóg með hið síðastnefnda heldur er lóðrétt tökkun merkisins á ofanverðum hliðunum sitthvoru megin og í áfram upp áfastann arkarjaðarinn EINNIG TVÖFÖLD. Þetta veldur því að síðastnefndir hlutar tökkunarinnar eru með svokallaða DEMANTSTÖKKUN (tvítökkun, ein ofan í aðra).
Lot: 6587
ISK 9.500,00
Fjöldi boða: 1
Selt
1930 - Ísland - 182E - Frímerki - Óstimplað (óhengt)
Tillaga að 40 aura Alþingishátíðarmerki í ljósmyndaformi, prentflöturinn er ca 90 x 70 mm. Sjaldséð.
Lot: 6588
ISK 9.000,00
Fjöldi boða: 1
Selt
1930 - Ísland - 183P - Frímerki - Óstimplað án líms
Prufuprent af meginprenti 50 aura Alþingishátíðarmerkis í dökkbláum lit.
Lot: 6589
ISK 13.500,00
Fjöldi boða: 10
Selt
1930 - Ísland - 184E - Frímerki - Óstimplað án líms
Ótakkað prufuprent af grunnprenti 1 kr Alþingishátíðarmerkisins í útgefnum lit með arkarjaðri að neðan.
Lot: 6592
ISK 5.500,00
Fjöldi boða: 2
Selt
1930 - Ísland - 184P - Frímerki - Óstimplað án líms
Ótökkuð óútgefin tillaga að 45 aura verðgildi fyrir Alþingishátíðarútgáfuna 1930 í stærðinni 38x30 mm.
Lot: 6593
ISK 5.100,00
Fjöldi boða: 4
Selt
1930 - Ísland - 186P - Frímerki - Óstimplað án líms
Ótakkað prufuprent af meginprenti 5 kr merkisins úr Alþingishátíðarseríunni í fjólubláum lit, með stórum jaðri að neðanverðu.
Lot: 6594
ISK 15.000,00
Fjöldi boða: 8
Selt
1930 - Ísland - 188P - Frímerki - Óstimplað án líms
Ótakkað prufuprent af meginprenti 10 aura flugmerkisins úr Alþingishátíðarseríunni í svörtum lit, með stórum arkarjaðri úr neðra hægra horni.
Lot: 6595
ISK 9.000,00
Fjöldi boða: 2
Selt
1930 - Ísland - 189-193 - Frímerki - Óstimplað (óhengt)
Heilt ÓHENGT sett af Alþingishátíðar Flugmerkjunum frá árinu 1930, 5 talsins. Facit ca ISK 57.000