Endurprentun af 8 skildinga merki, á hvítum pappír án líms. Eintak af endurprentunin þessari fylgdi hverjum seldum „Standard“ frímerkjaverðlista árið 1942.
1902-1903 - Ísland - 48 - Frímerki - Óstimplað (óhengt)
Skemmtilegt ÓHENGT 3 aura Í Gildi merki í tökkun 13 (litlir 3) með spegilprenti af Í Gildi yfirprentun næstu arkar á bakhliðinni. Facit listaverð fyrir venjulegt óhengt merki er ca 72.000 ISK.
1902-1903 - Ísland - 57v3 - Frímerki - Óstimplað (óhengt)
Sjaldséð - ÖFUGT VATNSMERKI - á ÓHENGDU 40 aura Í Gildi merki í tökkun 13. Merkið er illa miðjað eins og flest þekkt eintök af þessu merki með öfugu vatnsmerki (líklega flest úr sömu örkinni) en merkin er þar á móti ansi sjaldséð. Facit ca 32.000 ISK.
1911 - Ísland - 113 - Frímerki - Óstimplað (óhengt)
ÓHENGD hornfjórblokk af 25 aura Jóni Sigurdssyni. Falleg, ÓHENGD fjórblokk af 25 aura Jóns Sigurðssonar merki frá 1911 með arkarjaðri úr efra hægra horni. Það sem gerir blokkina einkar áhugaverða og skemmtilega er hversu mikil blæðing litar hefur orðið hálsi og upp á eyru sjálfstæðishetjunnar okkar blessaðrar, einning má sjá krókódílatár í augnkvarmi. Alls ekki eins algengt og menn gætu haldið og hvað þá í svo fallegri fjórblokk.